mótmælum mótmælendum kárahnjúka
19.03.2007 16:33:50 / Sissu

klaustur 2007

aha klaustur 2007 (Transatlantic Offroad Challenge) veður haldið 26 mai og skráðum við reynir okkur til kepni þegar opnað var fyrir skráningu kl 8 í gærkvöldi og skráðu sig 72 lið og 18 einstaklingar á sirka fyrstu 16 tímunum þeir sem að ég veit að skráðu sig líka eru gísli og jóhann en ekki var jóhann spurður álits þannig að ef hann verður á sjó ætlar skúli að hlaupa í skarðið, siggi kári skráði sig í einstakligs kepni ( skemtu þér að keira í 6 tíma ef ég væri með hatt tæki ég að ofan fyrir þig) ármann og einhver keppa saman og svo veit ég ekki meir en ef einhver sem er að lesa þetta ætti hann að drífa sig að skrá sig ef það er ekki orðið of seint www.motokross.is og svo er bara að muna að fjölmenna á klaustur og hella á hjólin og sjá þessi sköp.

en þá er komið að brautar málum!

hvað er hægt að taka til ráða til að þessir froðuhausar ná því að það vantar brá nauðsinlega braut í fjarðarbyggð og helst á nokra staði en allavega í fjörðin fagra eða á nesk því þar eru jú flestir hjóla menn eins og stendur allavega en eins og ég spurði hvað er til ráða? það hefur verið prufað að sýna hestamönnum, gólfurum, náttúrunni og öðru og öðrum tillitsemi í nokkur ár og ekki virðist það virka menn eru búnir að fara í bæjarstjórnina sirka 5 sinnum á sek en altaf segja þeir það sama að þeir séu að fara að vinna í þessu á eftir en aldrei gerist neitt. því spir ég er eina ráðið að gera úr þessu vandamál? er það það sem þeir eru að bíða eftir? við erum búnir að bíða rólegir í nokkur ár en nú en nú eru allir að springa menn eru farnir að tala um að taka til úrráða sem ekki var ætlunin að taka til í fyrstu en menn eru farnir að halda að sé það eina sem virkar en það er að spóla útum allt, sýna ekki hestmönnum eina einustu tillitsemi, vera sem mest hjá gólf vellinum og vera með sem mest læti, fara í innanbæjar enduro og fleira. vonandi þarf bara ekki að taka til þessara aðgerða en það verður gert í byrjun sumars ef hlutirnir fara ekki að gerast. um páskana er svo mín hugmynd að fá sem flesta til að hittast á H-planinu t.d á hjólunum og vera með friðsamleg mótmæli og sýna hversu margir eru í þessu en ég vil trúa því að þeir hafi ekki hugmynd um hversu margir eru í þessu sport eða ég vona það svo má líka sýna í blöðum og öðru hversu vel sveitafélagið vinnur með íbúum sínum 

en er þetta ekki nóg í bili

kv.siggi willi 


» 7 hafa sagt sína skoðun

13.03.2007 17:52:10 / Sissu

ætli maður bloggi ekki smá!

jæjja byrjar þá eithvað sem ég veit ekki hvað verður.

um helgina kom ég austur eða um 10 mín yfir seint og kom minn ástkæri hafþór að ná í okkur og fórum við beina leið í fjörðinn fagra. eftir að þangað var komið fórum við hafþór í aksturs ferð um bæinn og lentum reyndar yfir á esk og á endanum á egs á balli. fór svo á bretti á laugardags morgunin og var geggjað veður og ágætt færi á þeim bletti sem við lékum okkur á og svo þegar ég var að fara heim og var að keira framhjá leirunni sá ég mér til mikillar ánægju að leirann væri frosinn reif ég þá í handbremsuna og slefti fallhlífinni og náði að fara úr fleirihvndruð og 50 km hraða á sek niðrí 0,143 km á ári á 50 m hoppaði ég þá út úr bílnum í einu stökki niður á ísinn og hoppaði á honum nokrum sinnum skutlaði mér svo inní bíl opnaði lúguna í gólfinu og byrjaði að hlaupa var ég svo ákafur að ég náði 200 km hraða brunaði ég frá leirunni og niður að sjó og sendi jóhanni flöskuskeiti sem hann svo svaraði og fórum við því beint í að græja hjólin og vonuðum að þau færu í gang þar sem það var ekki búið að setja þau í gang frá því að við vorum að leika okkur í púðri og filtum því loftsíu boxin á 5 mín fresti og festum okkur í krapa pittum þess á milli. en semsagt þegar hjólin voru komin í gang brunuuðum við á leiruna og gerðum hring þar og lékum okkur á fullu með massífa drullu eða eithvað og þegar við stoppuðum heirðum við í hjóli niðri á söndum og kíkkuðum við á það þar var einginn annar en sigurður helgadóttir og fór ég að stökva í hólonum og endaði það með því að ég fór frammfyrir mig völdum þungs og lauss sands sem smaug aldeilis ágætlega inn í hjálminn og uppí nef og munn tekið skal framm að en er verið að tína sand úr nefinu. seinna þann dag fórum við bara á rúnitinn og eithvað og fórum svo á barinn um kvöldið og það var ágætt edrú og góður en um nóttina skutluðum við skúli gísla í aftaka veðri yfir á eskifjörð til að kúra hjá einhverri stúlku á esk var skúli stöðvaður fyrir undarlegt aksturslag en stafaði það af því að ég var altaf að flækja hendurnar í handbremsuni í beyjum alveg óvart. svo var réttsvo komist yfir á nesk aftur og farið á barinn aftur. þegar ég vaknaði á sunnudeginum fór ég beint í massíft þuglindi og vont skap eftir að hafa reiknað það út að ég vriri að fara suður aftur í þetta viðbjóðslega skítapleis og var veðrið ekki nærri nægilega slæmt til að frestað yrði flugi og ég sem var búinn að byðja guð um að hafa brjólað veður á flugvellinum í rvk framm að prófum og kanski ófært keirandi líka til að triggja þetta en allt kom fyrir ekki og þesvegna er ég hér enþá í vondu skapi. vá hvað þetta er orðið langt nú er nóg komið ætlaði reyndar að klikkast yfir brautarmálum fyrir krossara en ég geri það bara næst sæl að sinni

siggi willi


» 7 hafa sagt sína skoðun

04.03.2007 18:06:04 / Sissu

halló

jæjja ég náði að muna hvað heilvítis likilorðið væri!

nú er ég búin að vera edrú í 8 daga og er það pesónulegt met í mjög langan tíma og stefni ég að slá það dag frá degi núna á næstunni en það er ein spurning sem ég þarf að spyrja ykkur að og það er á ég að blogga eithvað? þá ætla ég að gera svona bloggar síðu endilega látiði mig vita ef einhver væria að fara að lesa bullið sem ég myndi skrifa!

kv siggi willi 


» 32 hafa sagt sína skoðun

04.03.2007 17:42:03 / Sissu

halló

jæjja ég náði að muna hvað heilvítis likilorðið væri!

nú er ég búin að vera edrú í 8 daga og er það pesónulegt met í mjög langan tíma og stefni ég að slá það dag frá degi núna á næstunni en það er ein spurning sem ég þarf að spyrja ykkur að og það er á ég að blogga eithvað? þá ætla ég að gera svona bloggar síðu endilega látiði mig vita ef einhver væria að fara að lesa bullið sem ég myndi skrifa!

kv siggi willi 


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.09.2006 22:20:11 / Sissu

nóg komið af bulli!

Nú er nóg komið segjum stopp við

mótmælendur

Kárahnjúkavirkjunnar, mótmælum

mótmælendunum!!

Kvittið ef þið stiðjið kárahnjúka!

Fuglar eða fólk þúfur eða þróun!

Upp með kárahnjúka!

ps. gæsirnar sem eru þarna fljóta

upp, ef þær vilja drepast þá halda

þær sér bara við botninn.

pps. dreifið boðskapnum. 


» 10 hafa sagt sína skoðun

07.09.2006 21:58:08 / Sissu

geithamstur! í garðinum mínum! what

í gær sá ég risa stóran geithamstur hlaupa í garðinum hérna hjá blokkinni ég er að tala um að hann var sko risa og klaufarnar gerðu risa loppu spor í grasið hátt í 20 cm á dípt. svo í margum sá ég dauða katthænu hérna í garðinum og var einungis búið að éta tvær lærisneiðar af öðrum vængnum. brjálaðar skepnur að éta ekki hriggin! hvað er svo málið með þessar kórónur á ljósastaurunum á ekkert að mála þær allar upplitaðar ég meina það er nú ekki eins og það sé erfitt að brjóta salstöng og gefa hundinum að éta!!! híðið á honum orðið eins og eplahúð það eru nú reundar til krem við því en á ekki hamsturinn að komast í gegnum það sem hann kemur hausnum í gegnum? hvað er þá málið að selja rabbabara sultu í túpu er ekki hægt að hafa þetta bara í krukku og ekki nóg með það þá þarf að taka upp kartöflur. afhverju er ekki bara settur tappi á þessi rör sem standa svona þá er ekkert mál að difra heildunina af pi? er ekki grænt vatn í vaskinum ha ? bíddu hver er þá í þessum sokkum ekki er ég í þeim enda laungu komin snjór þar! svo ekki nema von að það sé svona mikið að salt fisk í sjónum en eithvað minna orðið um fiski bollur annars er nú bara sól en langt á bakvið skýin eins og venjan er hérna fyrir sunnan sæl að sinni siggi willi

» 4 hafa sagt sína skoðun

27.08.2006 22:58:52 / Sissu

jæjja já

þá er komið að því að byðja fólk um að segja mer hvar ég get fundið myndir af mér frá versló eða senda mér ég hef nefninlega komist  að því að ég man mjög lítið eftir þeirri ágætu helgi og á ég afar erfitt með að skilja hvers vegna þar sem ég var nú frekar edrú :$ en á pós.is sá ég mynd af mér á hjóli og ég hafði ekki hugmynd um að ég hefði farið á hjól. en annars segi ég lítið bara komin suður í drullu og viðbjóð.

p.s endilega hjálpið mér að komast að því hvað maður gerði þessa blessuðu helgi getið kanski skrifað það í comments ef þið munið eftir einhverju fyndnu!


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.05.2006 23:22:37 / Sissu

Já hún er Silvía Night shining in the light so bright that she burned and died.

Já þannig fór með för Silvíu í þessa blessuðu keppni sem við eigum mjög líklega aldrei eftir að komast lengra í en í forkeppnina en allavega þá fannst mér hún hafa gengið of langt í þessum karakter hvort sem það var hún eða einhver annar sem ákvað hvað hún sagði þá allavega hjálpaði það henni ekki að komast nær því að komast áfram. Því lík snilld er það líka að það sé svona mikill klíkuskapur  ég meina það komust svo léleg lög í stað góðra laga í kvöld eins og þarna fótboltalagið og superstar ömurlegustu lög sem ég hef heyrt. Já og á meðan ég man þá er ég kominn austur í gær fórum við útá sjó að telja máfa en það var svo erfitt að telja þá þegar þeir hreyfðust svo við hægðum á þeim ;)

En jæjja þá er bara að sjá hvernig þetta fer á laugardaginn

Sælar

Siggi willi


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.05.2006 21:42:40 / Sissu

barnaland.is/barn/007

Sæl ég er sonur/dóttir sigga willa ég er nú reyndar en þá í pungnum á honum en það er nú aldrei að vita hvort ég komist út héðan og finni mér egg til að vaxa í og hver veit nema að það verði komist að því hvort ég er stelpa eða strákur síðan eru nú fullt af systkinum mínum hérna inni og mörg eru farin út en ekkert hefur frést af þeim svo það er talið líklegt að þau hafi villst af leið en það er nú bara gangur lífsins. Ég á fullt af vinum þarna úti en ég er ekki viss um að þeir viti það en ég veit það og það er fyrir öllu besti vinur minn er barn gunnars og stínu en það veit það auðvitað ekkert svo ef það segir eitthvað annað þá er það vegna þess að það veit ekki betur.

Dagbók

Í dag fórum við pabbi í próf okkur fannst það nú ekkert mál, svo fórum við bara með ómari vini okkar að borða og svo fórum við pabbi bara heim og lögðum okkur mér heilsast bara vel en pabbi er eitthvað slappur í maganum. Á mánudaginn þá er síðasta prófið og eftir það þá ætlum við að fara austur það verður gaman það er svo fallegt þar held ég! Ég hef nefnilega ekkert séð en pabbi segir að það sé best að vera þar ég held að það hafi verið þar sem ég var einu sinni næstum búinn að fara út en svo hætti ég við því mér fannst ég ekki vera tilbúinn

Hérna er svo mynd af okkur systkinunum og pabba í bakgrunn. Veit að þetta er ekki góð mynd af mér er svolítið úldin þarna!

  

 

 



 

 .



 

     .       .         .     .



 

.           .    .    .   



 

 .    .   .     .     .      .



 

.         .       .     .



 

Munið eftir gestabókinni  

» 7 hafa sagt sína skoðun

05.05.2006 19:04:07 / Sissu

já ef allt væri jafn einfalt og að drukna þegar manni er haldið niðri í vatni!

Þannig er nú í stakkinn búinn að próf ganga stendur nú yfir í mörgum skólum landsins og fyrir þá sem ekki hafa vitneskju um það hvað próf er þá er það að ef að ákveðin mannvera er að læra eitthvað og fyrir þá sem ekki vita hvað það er þá er það að auka við vitneskju sína á hlutum sem segir okkur það að þegar þig verðið búin að lesa þetta eruð þið búin að læra, en ef ég held áfram þá er það semsagt að þegar menn eru búnir að vera að læra eitthvað þá í enda kennslunnar og fyrir þá sem ekki vita hvað það er þá er það þegar einhver ákveðin mannvera deilir vitneskju sinni með öðrum og er þar með að kenna þeim sem hann deilir henni með, og ef við höldum áfram þá semsagt í lok þess að vitneskjunni hefur verið deilt þá er tekið þetta svo kallaða próf sem kannar það hvort árangur hafi náðst það er hvort nemendurnir þeir sem eiga að meðtaka vitneskjuna sem deilt er hafi hlotið þá vitneskju sem deilt var! Síðan ef ég segi ykkur aðeins frá því hvernig kennslu er háttað þá er það svo að því er virðist vera óskrifuð regla að málin eru flækt eins mikið og hægt er og reynt að ganga úr skugga um það að það séu króka leiðir til að hægt sé  að meðtaka boðskapinn ef við nefnum sem dæmi þá eru bækur (bundin rit) höfð eins óskipulögð og hægt er og reynt er að segja sem mynnst í sem mestum texta enda yrði það ekki rit uppá marga fiska ef það væri ör stutt og að það tæki stuttan tíma að læra þetta allt. Nú spyr ég hvað er það sem segir það að bækur þurfi að vera svona og að kennslan þurfi að vera svona af hverju er ekki bara hægt að skrifa það sem skiptir máli og skrifa af hverju það sé svoleiðis og allt það í stað þess að prjóna einhvern djöfulsins texta í kringum þetta og flækja þetta og fyrir utan það hvernig væri að hafa það bara á svipuðum stað í bókinni ekki bara hist og her um bókina. Þetta er mitt álit en hvað finnst ykkur finnst ykkur ekki eins og það væri hægt að kenna margt á einfaldari og hraðvirkari hátt?

Ef ég tek dæmi um svona þá er það t.d kælitækni bókin kæling eftir Þorstin Jónsson þar er ekkert efnis yfir lit enda ekki möguleiki á því efnið er hist og her um alla bókina annað dæmi er stillitækni bókin þar sem það er kannski verið að útskíra eitthvað og svo er það annað hvort ekkert klárað eða kemur langur texti um ekki neitt á milli sem er vart á manna máli og svo kemur það af hverju er ekki bara hægt að segja þetta er þetta og gerir þetta verður að vera útaf þessu og virkar svona og svo framvegis

Siggi w kveður að sinni og er vart að komast yfir það hvað þetta er vitlaust

P.S svo finnst þessu kennurum skrítið að menn nenni ekki að lesa þetta!                    


» 1 hafa sagt sína skoðun

02.05.2006 21:47:44 / Sissu

babsi dú

Í gær kveldi kom pálmi í bæinn eftir að hafa þurft að halda niðri í sér andanum í rúma 2 tíma uppi á Egilstöðum vegna seinkunnar á flugi þegar hann kom brugðum við okkur í keilu, þythokkí og púl og fórum svo að skoða nýa kajakinn hans og svo fórum við bara að sofa síðan í morgun þegar við vorum búnir að éta yfir okkur þá var ég viðbjóðslega fyndinn hann bað mig um að setja vatn í flösku fyrir sig svo ég gerði það auðvitað og svo helti ég bara smá tekíla útí sögur segja að þegar hann hafi fengið sér vænan sopa hafi hann verið búinn að taka uppí bílinn puttalinga og að honum hefði fundist þetta skrítið vatn og þegar þumallína og hinn puttinn hefðu séð viðbrögðin hefðu þau spurt er þetta ekki bara vatn og þá sagði hann þeim frá því að ég væri grunaður um verknaðinn! Og þegar þau vissu það að hann væri búinn að fá sér áfengi ákváðu þau það að þau héldu nú ekki áfram og fóru þau því út í rigninguna og gengu af stað í stað þess að vera með svona geðsjúkum íslendingi í bíl sem keyrði eftir að hafa neitt áfengis! En kannski er bara best að pálmi segi okkur frá þessu betur í komment hér að neðan.......nú fyrir svona fimm mín tók ég saumana úr hnénu  annars er lítið að frétta og ég segi kannski frá því ef eitthvað merkilegt gerist þangað til næst

Gúd bæ

Siggi w       


» 5 hafa sagt sína skoðun

02.05.2006 09:12:37 / Sissu

babi dúdí

Jæja er ekki rétt að taka eitt eld snöggt blogg sneggvast nú eru prófin að byrja og vor planið um helgina að vera rólegur og læra bara en það var nú eitthvað annað sem var gert og voru kannski notaðir svona tveir tímar í lærdóm og ekki samflett þannig að þið getið ímyndað ykkur árangurinn en það þíðir ekkert að fást um það nú þegar helgin er liðin og skóla starf hafið að nýu. Það eina sem ég hugsa um nú er það að ljúka þessum bévítans prófum og komast heim í fjörðinn fagra þó verður það stutt stopp því ég er að fara til ítalíu 25 að mig minnir og efast ég stórlega um að það verði leiðinlegt. Annars vona ég bara að þessar próf vikur verði mjög fljótar að líða og ég gleymi mér gjörsamlega í lærdómi þannig að þetta verði sem fljótast að líða og með sem bestum árangri! Brlalalelrlaa já svo var fyrsti des í gær eða eitthvað svoleiðis og auðvitað var ég með kröfu göngu íi stofunni og inn í herbergi til mín og krafðist ég þess að þegar að frí dagar lenda á helgi þá verður auka frí eftir helgina, að veðrið yrði gott í sumar, að fólk sem er svo vitlaust að það eigi ekki skilið að lifa fái ekki að lifa! Og að lokum að allt verði öfugt í heiminum það er örugglega snilld borðum með rassgatinu og skítum með jább gott er vont göngum afturábak á höndum já þetta var allavega fyndið þegar við barði vorum að spá í þessu en ætli það sé ekki komið nóg í bili.........ég nenni þessu alveg og djöfull er ég orðin saddur ég verð að fara að fá mér að éta  

að lokum vil ég óska slysa bræðrum mínum þeim ólafi og skúla til hamingju með daginn 9 mánuðum frá verslunarmannar helgi


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.04.2006 20:41:55 / Sissu

hinn ég!

já það er sá persónuleiki sem hugsar eitthvað um stjórnmál sem bloggar nú! fyrst spyr ég ykkur hvort þið hafið horft á ísland í dag í kvöld þar sem fjallað var um kosningar í fjarðarbyggð? ef svo er hvað fyrnst ykkur um þetta standslausa væl í Eskfirðingum og reiðfirðingum ég meina þeir eru alltaf að væla um það að það sé ekkert verið að gera hjá þeim og allt verið að gera hjá okkur á nesk er ekki allt í lagi með þetta lið? það er verið að byggja sundlaug á esk  stórt íþróttar hús á reiðafirði ásamt mörgu öðru sem er verið að gera og er búið að gera svo eru þeir að væla yfir því að það sé verið að gera þessa 60 ára sundlaug á nesk mönnum bjóðandi sem á meðan ég man var þarna fyrir og var gerð löngu áður en þessir bitru Eskfirðingar og Reiðfirðingar vissu hvað sundlaug væri  eða ekki voru þeir komnir með svoleiðis áður en farið var útí sameiningu nema blöndu af sundlaug og íþróttarhúsi kannski vegna þess að þeir höfðu ekki efni á því en þegar nesk sameinaðist við þá, þá fór loksins eitthvað að gerast þar, þess vegna bið ég þá að hætta þessu væli. best fannst mér þó þegar eskfirðingurinn sem ekkert vissi var að tjá sig eitthvað og sagði síðan í endann að hann væri vitlaus! Hvað var hann þá að tjá sig? En í lokin vil ég koma því á framfæri að ég hef ekkert á móti eskfirðingum og reiðfirðingum en þetta er nú frekar pirrandi væl í þeim þetta eru eins og börn sem eru að hella kóki í glas og það þarf að vera nákvæmlega jafn mikið í báðum glösum og þeir halda alltaf að það sé aðeins meira í glasinu hjá hinum! Einnig held ég að restin af norðfirðingunum hafi ekkert á móti þeim heldur enda eru þeir sýnilega þroskaðri og eru því ekki að væla um það hvor fær meira eða minna og eru að pæla í allt öðrum hlutum eins og fólkið frá austurbyggð.

Jæjja þetta var nú gott en annars er allt fínt í fréttum prófin fara að koma og á eftir þeim kemur svo sumar frí það verður ljúft að komast í skóla frí og skreppa til ítalalíu

Heirumst!

Kv. Siggi w         


» 4 hafa sagt sína skoðun

06.04.2006 00:14:00 / Sissu

heim á morgun!!!

já nú er loksins að koma að því að ég kem austur!!! í kveld skrapp ég með siggi k og barða á smá mjólkur sölu staða rölt og var ég að koma heim nú og fer ég þar að segja ef að það verður flogið þá kem ég kl 4 var ég búin að segja það? fuck it og þá fer ég á sýninguna cry baby sem allir ségja að sé svo viðbjóðslega góð.

en jæjja þá er ég hættur í bili

salutem! 


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.04.2006 12:14:58 / Sissu

eitt blogg sem kemur eins og þjófur úr heiðskýru lofti!

Jæjja er ekki kominn tími til að blogga smá? Já helgin var svona í rólegra lagi maður var blá edrú á föst og skipti ég um stýrisenda í bílnum og eins og ég er nú búinn að vera að draga það vegna þess að ég hef verið svo hræddur um að það taki einhvern tíma þá tók þetta svona svipaðan tíma og að skipta um dekk bara taka dekkin af og svo nokkur högg með tveim hömrum þá datt þetta í sundur og svo skrúfuðust þeir bara ljúflega af síðan þegar ég var búin að vera þarna niðfrá í dágóðan tíma að spjalla við hjalta frænda þá fór ég til óskars og við fórum og legðum spólu og er það mesta vitleysa sem ég hef séð einhverar verur í helli sem áttu að vera menn sem höguðu sér eins og leðurblökur þvílíkt rugl á laugardeginum var svo brallað ýmislegt barði mætti í borgina um kveldið fórum við í afmæli og innflutnings partý hjá Annettu og síðan kíkti ég á austfirðinga ball það var ágætt en þvílík röð úff þegar ég nennti ekki að vera þarna lengur kíkti ég í bæinn og voru  svo miklar raðir þar að ég fór bara heim nennti ekki að hanga í röð svo ég var bara kominn heim um 4 leitið. á sunnudeginum þá voknaði ég snemma og gat ekki sofnað aftur þannig að ég horfði á eina mynd í tölvunni og þegar hún var búin smsaði barði á mig og náði svo í mig og við náðum í óskar og ástu og þaðan var haldið í innréttinga skoðanir og svo mat á stælinum og var mikið hlegið á þeim stað af hinum ýmsustu setningum merkra manna eins og, hann kom bara eins og þjófur úr heiðskýru lofti, það er nú spurning hvort maður brjóti ekki brodd af dálæti sínu og heimsæki ykkur, hei judge he broke me eða eins og þetta átti að þíða á því andar taki sem þetta var sagt í fótbolta leik hei dómari hann braut á mér!, ég bara kemst allt á þessum árstíðar dekkjum Og margar fleirri góðar setningr og var einfaldlega legið í krampa í dágóðan tíma. Eftir þetta allt fóru óskar og ásta heim eftir að óskar var greindur með innri og ytri gyllinæð á háu stigi og var sprautað herslu efni í hana og teygju brugðið um hana.

Þeir sem vilja vita meira geta farið inn á slóðina hér að neðan.

http://www.doktor.is/Article.aspx?greinid=3882

já en þá fórum við barði bara á runktinn og fórum við einnig í bása og skutum 100 kúlum hvor, kvöldmatur var svo mallaður með ástu og óskari og hann etin og hélt ég skömmu eftir það heim að læra þannig var nú helgin hjá mér.....en hjá þér?

Þannig að nú kveð ég bara að sinni og já ég kem austur á fimtudag til að ná síðustu síningunni á vælu kjóann

Veriði sæl

» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3